Thursday, November 30, 2006

hver er hun?


Já sko svona lærir maður smám saman. Hvernig líst ykkur á myndina. Ég fer ennþá að hlæja þegar ég hugsa um þetta. Hrefna og Geir sitja á móti hvort öðru hún eins og prinsessa og hann líka voða fínn. Ég hress með nýju vélina mína að reyna að lyfta henni upp og takamynd af brúðinni (svona eins og maður gerir á rokktónleikum) og eina sem ég næ er grái kollurinn á dularfullu konunni. Hélt ég myndi pissa í mig af hlátri. Mamma húðskammaði mig en Obbu sem sat fyrir aftan fannst þetta voða fyndið..eins og mér.

Allavega hér er hún...og ég búin að læra að uploda myndir á bloggið mitt.
Ég ætla að æfa mig meira,... finna eina frá liverpool því ég á enn eftir að kaupa snúru til að millifæra myndirnar mínar. Geri það fjótt og tek myndir.

nei engin skemmtileg frá liverpool í tölvunni þannig að það verður bara að bíða betri tíma.

Jæja og hvað er svo að frétta? Mín búin að fá vinnu í Waterstones bókabúðinni fram að jólum. Fór í mjög skemmtilegt vinnuviðtal og var rosa lukkuleg með þetta allt... nema kannski kaupið en jæja.... sagði þeim hvað ég væri nú hress týpa og svona almennileg við viðskiptavini... soldið gagnslaus en voða næs.. þið vitið. Og fékk vinnuna. Byrja á þriðjudaginn. Maley var líka voða glaður með það, ég held hann hafi stundum smá áhyggjur af að mér leiðist. Hringir öðru hvoru bara svona til að tékka á mér og svona. En ég er alveg í góðum málum bara. Ofsalega afslöppuð... enda ekkert til að hafa áhyggjur af svo sem.. og ekkert til að gera... nema blogga og fara kannski í sturtu öðru hvoru.

Var svo að byrja í leikfimi. Keypti mér kort og fór í yoga í gær. Það var ekki eins og hjá henni Ingibjörgu Stefáns í yoga shala heima á Íslandi..., kom heim eftir tímann og sagði við kæró að ég saknaði yogakennarans míns. Hann skildi það vel... líður líka svoleiðis þegar hann fer á kaffibarinn og borgar 550 krónur fyrir bjórglas... þá saknar hann bresku pöbbanna þar sem bjórinn er á pund og nítíu. Við skiljum hvort annað...þó þetta sé yoga og bjór.

Já svo skellti ég mér til Manchester í gær og fór í viðtal vegna svona skólaleiktúrs... var komin í voða slum hverfi, var greinilega að fara heim til einhvers en ekki á neina skrifstofu.. eða svona þið vitið og var næstum bara snúin við en tók mig á og bankaði. Og þegar ég opnaði tók á móti mér glaðlyndur maður..hann stephen leikstjóri, með gleraugu og kryppu og bauð mér inn og ég sá alveg að það var allt í lagi. Bauð mér vatn að drekka sem ég þó afþakkaði og við spjölluðum um hitt og þetta en ég efast um að ég nenni að fara að leika Lísu í undralandi fyrir breska skólakrakka af því ég þarf líklega að flytja til Manchester nokkra daga vikunnar... og til hvers þá að hafa flutt til Liverpool eiginlega? Til að sofa í Manchester... nei ég efast um að ég geri þetta ef hann biður mig um það. En gaman að fara til Manchester og ég pikkaðu upp bækling um Masterskúrsa þar. Það er svo mikið hægt að læra!!!

Ég ætla að kíkja betur á þetta. Væri ekki vitlaust að læra eitthvað meira. Bara svo erfitt að ákveða hvað. Ég var bæði að kíkja á master í leiklist.. en það er kennt í póllandi.. og svo fór ég allan hringinn og var kominn á það að fara í umhverfisfræði og svona sustainable enviroment... eða European culture and philoshpy. Úr mörgu að velja.

Já ég er sem sagt komin með nýjan síma.. motorola (mér finnst nokia betri) og nr. er 07726168008. Fékk held ég ekki sms frá þér rúna... kannski á maður að sleppa 0 og bara 004477 etc. prófaðu það.

Talaði við Ásdísi áðan.. ég var nefnilega í rúminu að lesa alveg fram undir hádegi í dag og fór svo í ræktina og svo hingað... mjög rólegur dagur í dag eftir æsinginn í gær með manninum með kryppuna... og henni líður vel og Auði litlu líður líka vel og Snorri er líka hress en skilur samt ekki alveg af hverju hann má ekki fara með litlu systur í tivolí og svona leika meira með hana. ...undarlegt þetta líf stundum.
jæja kæró var að hringja og vill fara í ASDA... sem er stór verslun... ég held hann vilji kaupa stórt sjónvarp. Ég held hann sé svona laumugræjukall.... nýjasta er líka að þegar við verslum í matinnn eigum við líka að kaupa eitthvað gott til að geyma til jóla.. mjög góð hugmynd en núna er hann farinn að kaupa bara jóladót...við erum komin með Kampavín, Púrvín, súkkulaði, jólaköku og þurftum að stækka jólaskápinn... en enginn matur.

Ok ég sakna ykkar og elska ykkur. Verð dugleg með myndir svo.
xx
sol

ok virkar þetta???

Friday, November 24, 2006

einn dagur enn...

Jæja, ég var svo lukkunnar ánægð með öll kommenntin að ég verð að halda þessu áfram. Komst reyndar í smá bobba því ég vissi ekki hvernig ég átti að finna aftur þetta blogg sem ég byrjaði á en svo gekk það. Og ég gat líka loksins opnað bumsjakabloggið okkar vinkvennanna. Eins gott að ég hef svona mikinn tíma til að vafra á netinu. Núna er ég t.d. að tala við hann bessa minn á netinu og hann er að senda mér myndir frá hawaí af mömmu sinni held ég. Meira krúttið, vélritar rosa hægt en er rosa duglegur.

Jæja og hvað er svo að frétta.. sko ég er búina að finna alveg rosalega flottan gulan kjól sem mig langar svooo í. Hann er æði.
Svo fór ég í hádegismat með Maley sem var voda huggó og sit núna á kaffihúsinu og er að tölvast.

en ég er ekkert bara að hanga samt... fer í viðtal í Waterstones á þriðjudaginn, fyrir svona jóladjobb og svo á miðvikudaginn er ég að fara í viðtal út af leikaravinnu. Svona skólatúr eitthvað. Gæti samt verið mjög gott til að æfa sig í að tala almennilega ensku aftur. Þriggja milljón króna fína drottningarenskan mín er svoleiðis fokin út í veður og vind og nú ræður íslenski hreimurinn ríkjum í kroppnum, sem er mjög gott því ég skil ekki liverpool búa og þeir ekki mig, þannig að við þurfum bara ekkert að tala saman..

krúsí bessi er að senda mér myndir af rúnu og ömmu, þ.e. mömmu. Og hann er líka að læra. Hann er svo skemmtilegur. Erna var líka að segja mér svo skemmtilega sögu af Sverri en ég má nú ekkert segja hana....

Já hvað meira, ég ætla að fara að kaupa myndvéla dót til að geta tekið skemmtilegar myndir og sýnt.
fór í bíó í gær á breaking and entering... með jude law.. mér finnst hann bara ekkert sætur. Ég er kannski meira fyrir öðruvísi týpur. Hann er allt of fínn eitthvað... og svo var líka robin wright penn í myndinni... hún er voða sæt og rosa flott en lítur alltaf út fyrir að hún sé alveg að fara að gráta, svolítið svona eins og í den þegar hún var í þáttunum þarna með Eden og Cruz.. hvað hétu þeir aftur? Alveg dottið úr mér. Oh nú get ég ekki hugsað um annað..., texta Hrefnu í danmörku sem mun svara skjótt og þá get ég haft það sem lokaorðin í dag.

Sem sagt, allt fínt, tók gild systraorðin og er nú búin að opna fyrir comment á alla. Bessi er hress og er að læra, sendi mér blikkandi kall á sundskýlunni, hann er soddan sjarmör og nú er mamma hans komin heim. Bölvað vesen, ég er ekki með nóg kredid til að senda Hrefnu sms þannig að við bíðum bara spennt eftir kommentum. AHHHH þarna kom það SANTA BARBARA... nema hvað...æskuminningar hverfa ekki svo glatt!!!!

Tuesday, November 21, 2006

ok þetta er að koma...

jæja, ég veit ekki hvernig mér tókst þetta. Að búa til bloggsíðu. Sit á kaffihúsi og er mjög hissa á sjálfri mér. Ég var nefnilega að reyan að opna síðu sem við vinkonurnar erum með saman, ég er ekki búin að skrifa neitt þar í örugglega 2 ár af því ég gleymdi lykilorðinu, en mér á ekki að takast að opna síðuna. Og þar með er það komið, ætli ég gefist ekki endanlega upp á að skrifa á búmsjaka og byrji bara á minni eigin.

já takk.

og hvað er svo að frétta? Jú allt gott, ég er atvinnulaus í liverpool en það stendur þó til bóta.. þetta með atvinnuleysið. Er búin að sækja um allskonar störf hér og þar í bítlaborginni og bíð spennt á kaffihúsi með símann við hlið mér eftir að einhver átti sig á hversu ómissandi starfkraftur ég er og bjóði mér himinhá laun fyrir að gera eitthvað ótrúlega skemmtilegt.

íbúðin er rosa fín og kósí og kæró góður við mig. Hann var að frumsýna stuttmynd sem hann er búinn að vera að vinna að sl. föstudag og ég ætlaði svo sannarlega að vera fín. Skellti mér í boots og keypti mér rúllur í hárið. Fór heim og fylgdi leiðbeiningunum vandlega, taka smá hár, bleyta, spreyja rúlla, bleyta spreyja rúlla, bleyta spreyja rúlla. Hita með hárþurrku og láta þorna. Vaskaði upp með nýju bleiku uppvöskunarhönskunum á meðan þetta var að gera mig ótrúlega fallega og ævintýralega um hárið. Svo á maður að rúlla varlega hárið af og vola krullur. Gekk ekki. Leið svolítið eins og hrefnu þegar þurfti að klippa. Leit út eins og fuglahræða og setti allt saman upp í hnút og keypti mér djúpnæringu. Aumingja hárið mitt.

Ég þarf að æfa þetta eitthvað betur.

xxí bili.

hmm virkar þetta??

jæja það er spurning hvar skal byrja?
byrja bara hér. það er rigning og ég sit með nýja maccann minn sem ég kann ekkert á og þarf núna að reyna að laga þetta eitthvað til. fontinn sko.
ef þetta virkar þá skrifa ég kannski meira seinna.

mér finnst eins og ég sé rétt að fæðast á þessari tölvuöld....