Tuesday, May 15, 2007

í frettum er þetta helst... helst ekki!!

jæja hvað er svo að frétta??? Hrefna búin að eignast aðra litla stelpu.. kíkti á myndir af vísitölufjölskyldunni og hrefna leit nú ekki út eins og nýkomin úr fæðingu.. hún lítur bara út eins og súpermódel. Og snúllan svo sæt og Arna svo sæt stóra systir ... og Geir náttúrulega líka sætur!!!

Fór til London ja, vá hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast.. búin að fara tvisvar til London.. já fór og heimsótti Maite vinkonu mína og við fórum í leikhúsið og sáum Gísla Örn Gardarson sveifla sér um Breska Þjóðleikhúsið... fín sýning og hann bara frekar fyndinn fannst mér. Fór í yoga í London og hitti Kristínu Laufeyju og við fengum okkur lunch og hlógum soldið og svo fór ég í partý... innflutningspartý hjá vinum Maite.. og hittum tvo vini hennar á barnum áður en við fórum.. mjög gaman. Já það var alveg rosa gaman.. svo fór ég aftur núna í gær til London að lesa inn á auglýsingu fyrir ITV local... og svo er ég bara að vinna. ... soldið leiðilegt blogg. hahah. jæja þér er nær að lesa alla leið hingað!!! hefðir átt að hætta þegar geir er sætur!! er það ekki bara? eigum við kannski að láta þetta gott heita bara? held það. vá. já.

eitt ljóð í lokin? nei ég hélt ekki.

bæ.

11 comments:

Anonymous said...

Þú skrifar alltaf mjög skemmtileg blogg. Þú skrifar blogg bara sjaldan. Sem er kannski bara fínt. Eitthvað óhugnalegt við fólk sem er alltaf að blogga.

Agusta said...

Hahahaha yndið mitt.
xx

Hrefna said...

Takk sæta þú ert líka sæt, mig minnir það allavega, allt of langt síðan ég sá þig :-(
Heyrðu hver á svo afmæli á morgun??

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið elsku Sóla.
Knús frá Aarhus
Ásdís

Rúna said...

Til hamingju aftur og aftur og aftur með afmælið! xx Rúna

hlakka til að fá þig heim á föstugdaginn:o)

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið mín kæra.
Hlakka til að sjá þig næstu helgi!
xx

Arna B. said...

Til hamingju með afmælið í gær!
(Er aðeins sein á mér.) Vona að þú hafir notið dagsins í botn.
Knús og kram,
Arna

Magga said...

Elsku Sólveig mín!
Innilega tilhamingju með daginn í gær!
Þú verður að afsaka að dagarnir eiga það til að renna til í einn graut við að vera heimavinnandi og því er ég soldið sein með kveðjuna.
Hlakka rosa til að sjá þig um næstu helgi!
Knús
Magga

Unknown said...

Hallú elsku Sólveig mín, ég segi bara aftur til hamingju með afmælið þitt:) Ég sendi sms á ísl.símann þinn en þú ert kannski komin með eitthvað annað númer eða eith..er þetta númer ekki í gangi eða..neeeih bara djók. Nei en í alvörunni, ertu með eith.annað númer?xxMek

solveig said...

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar. þrítug, skítug nei bara þrítug... var í klippingu meira að segja.. rosa hrein... já er með síma 00447942242244 rosa fínt númer ha. Hlakka til að koma heim.

xxx sol

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið þann 19.mai!!!!
knús