Wednesday, February 7, 2007

meira bullið

Ég ætla alltaf að vera svo framtakssöm á og gera allskonar praktík á netinu en enda bara á að googla og skoða og vesenast.

já einmitt var að skoða síðuna hennar örnu litlu hennar hre. Er nefnilega búin að vera að dreyma þig Hrefna svo mikið sl. nætur. Einhver tengsl eitthvað. Rosa gaman hjá okkur samt. Allavega, sætar myndir af Örnu. Hvenær ferðu heim segiru? hmm ég ætti kannski bara að senda þér prívat e-mail.. eða bjalla í þig? Er Dísa skvís eitthvað á leiðinni? Kannski bara um páskana.


Allavega, hvað er að frétta hér jú bara skiðsæmilegt, hitti Íslenska stelpu í gær, tattúgaurinn sem er með stofu rétt hjá vinnunni minni kom með hana í heimsókn til mín af því ég hafði verið svo spennt að vita að íslensk stelpa væri að fara að fá sér tattú hjá honum. Hún heitir Guðný og við ætlum að fá okkur kaffi bráðum. Gaman að því.

Svo er valentínusardagur nk. miðvikudag.. en mér er alveg sama um það af því ég held ekki upp á valentínusardaginn... bara Valdís Gunnars á bylgunni og kaupmenn sem eru að reyna að pranga upp á mann rósum og súkkulaði.

Desperate houswifes eru í kvöld.. ég er búin svona smá að koma Maley inn í þættina.. honum finnst bree skemmtilegust... situr þarna og hlær og þegar ég lít á hann þá þykist hann samt ekki vera að fylgjast með. En ég veit að hann er alveg hooked!!!

Áttum notó helgi og bara hress.

xx sol

6 comments:

Anonymous said...

Æ þið eruð svo sæt :) Matti hefur líka lúmskt gaman af Desp. Houswifes hehe og finnst Bree einmitt skemmtilegust.
Mig er alltaf að dreyma þig Sóla mín, er eitthvað að bardúsa með þér nánast á hverri nóttu núna undanfarið... Einu sinni vorum við að fara með lest eitthvað.. eða var það bátur... man ekki...
Anywho, er að fara að setja nýjar myndir á síðuna hennar KÞM ef þú ert á flakki um netið :)
xx
Ágú

Anonymous said...

he he he, þarna hefnist þér Ágústa mín fyrir að hafa STOLIÐ Sólu frá mér í 7 ára bekk, þig dreymir hana en hana dreymir bara MIG!!!! Ha ha ha
Talandi um drauma þá er mig tvisvar búið að dreyma að barnið sem ég geng með fæðist fulltennt!! Verður fróðlegt að kíkja í munninn á krílinu þegar það lítur dagsins ljós.
Ég gaf einmitt pabba mínum krútta 1 seríuna af Desp. housew. í ammó, hann varð geðveikt glaður.
Hrefna

Anonymous said...

Já og verð á íslandi 16-23 febrúar. Held að Dísa krútt sé ekkert á leiðinni.
knús
hre

Rúna said...

hæhæ

hvar ertu að vinna, sól? deli?? ég myndi gleyma hausnum á mér ef hann væri ekki fastur við búkinn - Veit að Dísa kemur heim um páskana... og tóta og alles! já og Snorri og Ingvi og Auður ofcourse og Jacob den danske.

xx Rúna

hre - verð að sjá þig min1x áður en þú fæðir krílið!!

Agusta said...

haha Hrefna. Varðandi fulltennta krílið þá held ég að það sé fyrir mjög góðu að dreyma þannig, jafnvel fyrir fleiri börnum ;)
Sólveig af hverju svararðu okkur aldrei hérna í kommentunum ? We feel so alone...

solveig said...

Don´t feelalone baby... hringdi í þig í dag gústala brown en þú varst í baði. Nú veit ég samt að hann matti er veikur. jájá. greyið litla. Fékk mér te og hollsnakk. er að kíkja á flug til að geta samhæft vinkonur á landinu og systraafmæli á sem bestan hátt. Ætla líka í klippingu og litun takk fyrir. Á ennþá ókeypis litun, klippingu og augnabrúnaplokk síðan ég vann dragkóngur íslandskeppninga. varstu kannski líka búin að gleyma því rúna??? já já maður hefur ýmislegt brallað um dagana.. snjór úti og ég ætla að kíkja á flug.

xxsól