Wednesday, January 31, 2007

Brrr iskalt a spani maður!!!






Og ég sem tók bara með mér kjóla, léttan jakka og svona... gat ekki ákveðið hvort ég átti að taka rauðu sandalana eða gulu skóna mína.. báðir álíka sumarlegir þannig ég tók bara báða!!! voru samt notaðir... á leiðinni í morgunmatinn en ekkert úti því það snjóaði takk fyrir daginn sem ég kom, svo á laugardaginum var líka kalt en samt sól og fínt og við fórum og skoðuðm La Alahambra sem er gömul höll uppi á hæðinni, yndislegt útsýni og ótrúleg bygging.

á sunnudeginum fórum við niður að ströndinni og massa rok en samt alveg svona 14 stiga hiti. Svo á mánudeginum rigndi bara allan daginn þannig við fórum í Arabísk böð og fengum nudd og svona huggulegheit.

Sem betur fer var Maite með hlýja peysu til að lána mér. Annars hefði ég bara orðið úti þarna á spáni. Takið eftir Graffiti myndunum.. mér fannst þær svo flottar. út um allt.

Það er rosalega fallegt samt í Granda og ég mæli eindregið með ferð þangað fyrir hvern sem er. Góður matur og góð sangria. Og þegar maður fer yfir götuna þá labbar græni kallinn... bara svona venjulega og fyrir ofan eru sekúndur.. hvað þú hefur langan tíma til að fara yfir götuna. Svo þegar svona 7 sek eru eftir byrjar hann að hlaupa... mér fannst þetta svo hrikalega fyndið að ég tók video af þessu og ætla að reyna að setja á heimasíðuna en þangað til verða myndirnar bara að duga.

Hvað meira? jú við fórum og sáum flamengo dansara og söngvara... rosa flott og svo mikil innlifun... myndi samt ekki einhvern veginn virka t.d. hjá bretum eða okkur íslendingum að syngja með svona mikilli innlifun um tunglið og ástina.... la luna la amore... ég skil smá spænsku sko!!

Og alls staðar appelsínutré. ég er svo hrifin af Appelsínutrjám og berjatrjám. Tók fullt af myndum af appelsínutrjánum... og hugsaði með mér ja þetta er hvergi heima... við erum meira svona kartöflur og skottís þjóð. Og ákvað með mér að læra flamengo.

Kvarthornið!!!
Já sem sagt kvarthornið að þessu sinni yfir flugi... Djöf vesen er það að geta ekki bara ferðast með þann vökva sem maður vill ferðast með.. hvers vegna þurfti nú að skemma það fyrir okkur venjulegum ferðalöngum að geta ekki keypt t.d. ólífuolíu og farið með heim.. eða ferðast með sjampó.. maður á kannski stóran brúsa og vill ekki kaupa aðra tegund. Nei nei búum til sprengju úr vökva og skemmum fyrir öllum! Og annað, sat við hliðina á stelpu á leiðinni heim og það var svo vond lykt af henni, hún notar greinilega ekki sjampó, kannski var það tekið af henni og hún neitar að kaupa nýtt...??? nei hún var svona hippatýpa... söng voða mikið og svona stemmning.

Og svo finnst mér að það eigi að klappa fyrir flugmönnum þegar þeir lenda vélinni..svona takk fyrir að ég er lifandi klapp .... það hefði getað farið illa en gekk.

og einnig að lokum þá finnst mér líka skemmtilegt þegar flugfreyjurnar sýna manni neyðarútgangana og hvernig á að blása upp vestið og svona.. þegar þær gera það í persónu þó svo Þórunn lár sé rosa sæt í flugleiðavélunum. Mér finnst hitt bara svona persónulegra eitthvað.. vitiði hvað ég meina.

Heimþrá 6,5 á skalanum einn til tíu. Æ svona sjö kannski meira....

7 comments:

Agusta said...

Oh það er svo gaman að lesa það sem þú skrifar, maður sér þig alveg fyrir sér og heyrir röddina í höfðinu þannig að það er pínu eins og þú sért hjá manni :o)
Alveg sammála með vökvana, ömurlegt og óþolandi!
Knús og kossar og takk fyrir kvittið hjá Kristínu Þuríði :)

Hrefna said...

Já glatað með vökvana, samt mest út af því að maður getur ekki haft glossið með sér áhyggjulaust, best að gera voða veður yfir því og setja það í glæran poka og eitthvað voða!!! Ég set nú bara sjampó og svona í ferðatöskuna enda get ég ekki haft ferðatösku með mér inn í vél því ég er alltaf með svo mikinn handfarangur með mér fyrir aka. Arna krútt.

Rúna said...

hæ sys, þú ert hinn klassíski Íslendingur á leið til Spánar í sólina! Held þú þurfir að skrá þig inn á youtube.com og hala þar niður og setja svo inn í bloggið (myndbandið - er nefnilega mega spennt að sjá það) drífðu þig að kaupa þér nýjan síma svo ég geti hringt í þig - já og skalinn minn á söknuði til þín er alveg að komast upp í 10... hvenær ferðu annars að koma heim?

xx Rúna

p.s. ef þú kemur bráðlega þá veistu að ég er að verða að konu (27 ára) og sverrir ætlar að elda fyrir þig mega góðan mat (kjúlli með sólþurrkuðum tómötum, fetaosti og alls konar gúddí stöffi troðið inn í kjúllann ... mmm...)
xxx aftur

Rúna said...

fékkstu myndina sem ég sendi þér á s.gudmundsdóttir mailið þitt?

xx Rúna

Anonymous said...

Fékkstu sms-ið frá mér í dag Sóla mín ?

Arna B. said...

Gaman að lesa bloggið þitt. Skemmtilegur texti. Fyndið að það hafi verið svona kalt í Granada. Þú ert annars ekki að missa af neinu á Íslandi. Bara vetur og snjór hér.
Koss og knús,
Arna

solveig said...

hæ nei fékk engar myndir og ekki sms... týndi símanum mínum en nýja nr. er 00 44 7942242244

sól