Saturday, March 24, 2007

heimsokn

Mamma er að koma í heimsókn til mín í næsta mánuði og ætlar að taka Bessa Gaut og Tómas með.... þeir vita nú ekki af því enn en við ætlum að segja þeim í kvöld... hlakka rosa til að fá þau og þetta þýðir náttúrulega að maður þarf að skella sér á fótboltaleik með mömmu og drengina.. ekki satt.

ég er sem sagt búin að komast að því að eini leikurinn í Liverpool og nágrenni er Everton gegn man united. Skemmtilegt en verður erfitt að fá miða var mér sagt þannig að ég er búin að vera í beinu sambandi við Man united aðdáendaklúbbinn heima á íslandi og þeir eru að hjálpa mér að fá miða... sjúklega fyndið... googlaði þeim bara og fantagóð síða bara verð ég að segja. Og skjót viðibrögð.
Kæró fer til Glasgow núna á mánudag í 3 vikur að æfa og ég ætla þangað um páskana að hitta hann. Verð bara ein í kotinu á meðan og ætla að nota tímann í að experimenta með brúnkukerm og annað þvíulíkt til að fitta betur inn. nei bara djóka.

Þarf að fá mér vinnu þar sem ég geri ekki neitt spes en borgar rosa vel... any ideas.

jæja over and out...
x.

1 comment:

Rúna said...

Oh, hljómar ekkert smá spennandi, vildi að ég gæti komið í heimsókn til þín!

Ég veit um fullkomna vinnu - veit þú hefur áhuga og fullkomna getu í:o)

xx Rúna

p.s. það er mega gott veður hérna á Íslandi í dag (allavega þessar mínúturnar)